20.9.2007 | 12:00
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Það er alltaf betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og gera ráðstafanir í tíma. Fyrsti jólaundirbúningur er hafin hér í Öldugötunni. Ketið er sem sagt komið í reyk. Já Hrafnhildur mín,Gummi og Jakob þið fáið heimareykt kjöt á "Láka"(ólafsfirðingarnir fá líka að smakka)Oh hvað verður gaman. Það eru bara 95 dagar þangað til.Hef töluna eftir áreiðanlegum heimildum eða af síðu Hrafnhildar, sem farin er að telja niður. Eins og sjá má á myndinni hér(höf:Svava með tár í augum yfir fegurð Víkurinnar) er fremur haustlegt orðið um að litast. Bæjarfjallið er ótrúlega tignarlegt en lengst til hægri má sjá Bassa og Jökulkollur.Það er nokkuð ljóst að ekki verður farið meira til berja í ár. Haustlitirnir í fjöllunum hér um slóðir eru bara yndislegir og þeir sem aldrei hafa upplifað litadýrðina á Dalvík og nágrenni á þessum tíma árs ættu að láta það eftir sér. Ég get lofað því að fólk verður uppnumið af fegurðinni. Auðvitað má sjá svipað víða en ég fullyrði að samsetningin hér er einstök.Það er náttúrlega bara "ónáttúrað" fólk sem ekki kemur auga á þetta. En aftur að jólaundirbúningi, þar sem ketið er komið í kofa er næst að huga að jólakortagerð.
Svo að allt öðru máli bara til gamans. Ég hef verið að velta vöngum um hvort hann Þorgrímur Þráinsson sé illa haldinn af þessum margumtalaða "gráa fiðring" Karlanginn (alger töffari) telur sig færan um að kenna öðrum mönnum hvernig koma eigi fram við konur. Hann auglýsti námskeið þar sem hann ætlaði að fara yfir allan pakkann,í sambandi við samskipti karls og konu. Ekkert undanskilið. Sem sagt hvernig elska á konur.Mér kemur þetta auðvitað ekkert við mér fannst þetta bara pínu fyndið. Ég sá hina og þessa drífa sig og læra ýmsa "töffaratakta"og í kjölfarið töfra konur sínar með þeim. Ég hef reyndar engar fréttir af námskeiðinu hvort búið er að halda það eða ekki. Ætli Jónína Ben yrði ekki flottust til að kenna okkur konum hvernig elska á karl, ég held það. Nýjustu fréttir af Þorgrími (hann er alltaf að koma sér í blöðin) eru þær að hann situr nú við skriftir úi í París (í borg ástarinnar) og skrifar kvikmyndahandrit. Eiginkona hans ætlar að koma til hans og vera með honum síðustu 4 dagana.Þá verður smá rómatík í borg elskendanna. Góður Þorgrímur.
Athugasemdir
Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg [einhvern tímann] ríða heim aftur og fara hvergi.
E.S. Það má með sanni segja að Jónína Ben. bindi ekki sína bagga sömu hnútum og samferðamennirnir. Stundum finnst mér hún hitta naglann á höfuðið en oftar sannfærist ég um það að hún spili ekki úr fullum stokk.
Winston (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 17:00
Eða eins og maðurinn saggði forðum: "fögur er hlíðin... og ég fer ekki rassgat!"
Es. Það verður ljúft að fá hangikjetið.. svo ég tali nú ekki um laufabrauðið!
Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 21.9.2007 kl. 16:35
jæja, farin að huga að kortagerð já. Ekki læt ég neitt uppi þetta árið það er víst. Annars er Þorgrímur mér líka hugleikin og mig langar bara að spyrja hann einnar spurningar ; "Hvað heldurðu að þú sért?"
Þórgunnur R Vigfúsdóttir, 21.9.2007 kl. 17:56
Þessi umræddi Þorgrímur sem telur sig greinilega vita ýmislegt um konur; er þetta ekki sami maðurinn sem skrifaði bókina "Allt hold er hey"? Það er allavega áhugaverð lesning, kannski vegna þess að hann skrifaði í gegnum miðil?
Annars; VÁ eru bara 95 dagar til jóla? KNUS til ykkar allra kæru mæðgur!
Svava (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 00:25
sæl frænka
til hamingju með síðuna, sjá hana hjá Svövu. Ég mun verða reglulegur gestur
knus í bæinn
Steina Jóhannsd. (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 20:37
Hvernig er þetta með kona?! Ertu enn að setja ketið í reyk? Er ekkert að gerast?
Allý (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 14:51
Foreldrarnir þykjast vera fluttir til Spánar Allý mín! Maður bíður bara eftir fréttum...
Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 27.9.2007 kl. 13:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.