„Góð bók er gulli betri„

 Lestrarhestarnir í kaupstaðarferðUndanfarnar vikur hef ég lesið nokkrar góðar bækur. en bókalestur hefur setið á hakanum hjá mér undanfarin ár. Því finnst mér alger munaður að geta legið í bókum án alls samviskubits. Fyrst er að telja bækur sem fjalla um kvenspæjarastofu númer eitt. Höfundur bókanna er Alexander McCall Smith. Atburðarrásin gerist í Botswana í Afríku. Það má segja að þessar bækur hafi heillað mig. Þær eru alveg einstæðar. Það ríkir svo falleg einlægni og manngæska í þessum skrifum. Svo eru þær meinfyndnar í þokkabót. Titlar bókanna eru líka skemmtilegir. S.s. „Félagsskapur kátra kvenna„ „Siðprýði fallegra stúlkna„ „ Fullur skápur af lífi„ Ég mæli eindregið með þessum bókum. Þær bæði bæta og kæta.Þær eru fullar af mannlegri samúð. Bókin sem ég var að ljúka við er allt annars eðlis. Hún ber titilinn „Heimsins heimskasti pabbi„ og er eftir Mikael Torfason. Í þessari bók kveður við allt annan tón. Í henni er að finna mikinn skít og tilfinningareymd. Orðavalið er ótrúlega gróft og á fyrstu síðum ætlaði ég að henda henni frá mér, en gerði það ekki og lauk við að lesa hana. Ég sé ekki eftir því. Bókin er mjög áhrifamikil og fyndin á köflum.

Ninni hefur verið að lesa „Saga Dalvíkur„ Ásdís og Óskar færðu okkur tösku að heiman, sem Þórgunnur hafði tínt sitt lítið af hverju í, eitthvað sem okkur fannst vanta að heiman. M.a. öll bindin af „Saga Dalvíkur„(Júlli verður ánægður) Þessar bækur eru náttúrlega bæði fræðandi og skemmtilegar. Ninni las upphátt fyrir mig í gærkvöld. Það var svona baðstofustemming í kotinu hjá okkur.Hann las um prakkarauppátæki Gunnlaugs í Háagerði. Sá hefur nú verið stríðinn og lagt heilmikið á sig til að koma prakkarastrikum sínum í framkvæmd. Það væri  örugglega búið að greina hann og dæla í hann rítalíni væri hann meðal okkar í dag.

Gleymdi sundfötunumEn svo að allt öðru. Ég hef verið eitthvað utan við mig undanfarið. Ég ætla að gefa ykkur smá dæmi. Ég var að fara í sundlaugina sem ég geri daglega og ekkert merkilegt við það. Ég vippa mér upp og fer í sundfötin (bikiní) þar sem ég kem stormandi niður segir Ninni, um leið og hann horfir hálf hneykslaður á mig : „Ætlarðu að synda á brókinni„ ég lýt niður á mig og sé að ég hafði gleymt að fara í neðri hluta sundfatanna. En ég var þó í brók. Það eru fleiri dæmi en ég segi ekki frá fleiru að sinni. Ég var að spá Svava hvort þetta geti verið byrjunin á þú veist? Kannski les ég bara of mikið. Að lokum bið ég allar góðar vættir að vernda ykkur og lýsa vegi ykkarHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Oo mamma mín... þú ert engri lík

Ég hef algjört yndi af Kvenspæjara-bókunum, þær ná til manns og eru þó svo einlægar og einfaldar. Enda voru það einar af fáum bókum sem ég gaf ekki frá mér við flutninginn  Það ættu allir að lesa þessar bækur, þær eru bara mannbætandi og ekki laust við að þeim fylgi ákveðin hugarró líka...

Mamma mín: á meðan þú ferð allaveganna í EINHVERJU í sund... þá myndi ég ekki hafa miklar áhyggjur!

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 27.10.2007 kl. 01:34

2 identicon

komið nú blessuð og sæl:) þetta er nú kannski ekki beint svona bloggefnið sem ég get kommentað yfir hehe bækur? þið vitið það er nú ekki beint mitt fag sko... enn það er annað mál annars þá þurfti á nú að lesa blóðberg núna í íslensku og ég las hana takk fyrir alla blaðsíðu fyrir blaðsíðu og svo ætlaði ég að vera mjög dugleg fór þarna í krossapróf úr henni og allt í lagi með það svo kemur helgi og ég átti að gera bókmenntaskýrslu úr bókinni samt ekki fyrr enn fyrir næsta föstudag eftir viku og ég ákveð nú bara að vera heim yfir helgina að læra! bara lææææra og ég gerði það gerði þessa helvítis bókmenntaskýrslu kem í skólann og kalla á kennarann og hún HLÆR af mér og segir andrea mín þú átt að gera þetta í tímanum!! ég bara HA? oog má ég ekki nota þetta þegar ég geri skýrsluna hún hlær meira og segir nei mátt hafa bókina ekkert meir enn segir svo kvikindislega...þú ert nú vel undirbúin allavegana! mér fannst þetta nú lítið fyndið sko! get hlegið af þessu núna þegar þetta er búið:P

enn annars neeei elskan mín þetta kemur fyrir bestu menn:D hehe þetta er engin einkenni á byrjun þú veist? hehe ég get alveg bókað það

þú hefur nú alltaf átt svona móment annað slagið má segja:D hehe enn annars þá var ég að koma úr sturtu ég ætla að drífa mig í föt og hjálpa mömmu og sonna:)

Heyrumst looov Andrea;**

ps: Húmorinn þarna í nafninu mínu er þú segir alltaf pabbi þinn:D ákvað að hafa þetta svona með bara upp á djókið

enn fékkstu myndina af mér og svo okkur öllum saman? 

Andrea Sif Hilmarsdóttir(Vigfúsdóttir) haha (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 14:44

3 identicon

Það er svo ljúft þegar lesið er upphátt fyrir mann. Þessar bækur sem þú nefnir hef ég ekki lesið, en kannski gefst tími til þess á komandi ári.

Annað fannst mér nú bara "ögn líkt þér" og kannski bróður.

Þórgunnur (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 14:56

4 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Gott að heyra að þið hafið ekki áhyggjur af gleymskunni hjá mér. Hrafnhildur mín ég held að þetta séu bækurnar þínar. Ég passa þær. Andrea mín mér finnst nú alveg að kennarinn hefði getað leyft þér að nota skýrsluna. En svona er lífið. það er ekki alltaf jólin. Þórgunnur! ertu að meina í alvöru að þér finnist Kristján bróðir þinn geta stundum verið utan við sig?

Svanhildur Árnadóttir, 28.10.2007 kl. 09:14

5 Smámynd: Þórgunnur R Vigfúsdóttir

Nei, ég tek þetta ummæli mín um prinsinn til baka. Auðvitað er hann alla tíð og tíma með "fulle femm" og veit nákvæmlega hvert hann er að fara og hvaðan að koma.

Þórgunnur R Vigfúsdóttir, 28.10.2007 kl. 19:54

6 identicon

Var farinn að halda ritstífla væri farinn að hrjá þig,  farinn að sakna þess að sjá ekki skrif um ævintýri ykkar þarna ytra. En miðað við síðasta skrif þá hefur þú bara gleymt að koma einhverju á skjáinn. Ekki hafa þó áhyggjur fyrr en þú ætlar allsber í laugina. Hvað um það héðan úr Vættagilinu er allt gott að frétta og við sjáum að það er greinilega allt í góðu hjá ykkur.

Mbkv ykkar frændi og vinur Atli og co .

Atli (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 20:28

7 identicon

Elskuleg! Já eru þær ekki frábærar stelpurnar á Kvenspæjarastofu númer eitt! Hafðu ekki áhyggjur af brókarleysinu, á meðan flíkurnar lenda á þartilætluðum stöðum er ekkert að óttast! Hvað er líka að því að synda í brók?

Þarf að fara að skrifa þér svona almennilega; er það svansaogninni@hotmail.com sem er í gildi núna? Stórt KNUS

Svava (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 23:07

8 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Gott og gaman að heyra frá þér Atli minn og co. Við höfum það svo sannarlega gott hérna í sólinni. (stundum rigning ekkert til að tala um) Svava mín farðu nú að skrifa, þú tlar bara um að skrifa. Netfangið mitt er: svansa@simnet.is    eða : svansa13@gmail.com . Þórgunnur þú gleymdir hvert hann er að hringja.

Svanhildur Árnadóttir, 29.10.2007 kl. 09:19

9 identicon

Sæl... Með bókalesturinn, að þá er skó nóg að gera hjá mér í honum! Ég sakna þess samt að lesa bók sem ég hef mikið gaman af... bækurnar sem ég les þessa dagana eru orðnar þannig að ég vil helst ekki opna þær:) Nei nei segi svona.. Flugdrekarhlauparinn er alltaf á náttborðinu en einhvern vegin hef ég ekki komið því verk uppá síðkastið að klára hana...

En með sundfötin... ég hélt að það væri í tísku að vera í ósamstæðu:)!!!!

Bestu kveðjur úr Tröllagili!

Þórgunnur Lilja (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 15:27

10 identicon

Sæl og blessuð.

Hef heyrt að þessar bækur séu frábærar, ég get líka mælt með Flugdrekahlauparanum og Viltu vinna milljarð.

Bestu kveðjur úr Kópavogi,

Hulda Signý

Hulda Signý (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 17:12

11 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Þórgunnur mín Lilja. Það er mikil vinna að vera í námi og ég veit að þú munt spjara þig. Ég vissi þetta að  það þætti flott að vera í ósamstæðu. Hulda Signý þessar tvær sem þú nefnir eru alveg frábærar báðar tvær. Búin að lesa þær og gæti alveg rennt yfir þær aftur í góðu tómi. Love.

Svanhildur Árnadóttir, 30.10.2007 kl. 19:29

12 identicon

sæl svansa mín.

Ég hreinlega kolféll fyrir kvenspæjarnum, þvílík sálugefandi og yndislegar bækur...  Flugdrekahlauparinn einnig frábær.   Á náttborðinu liggur bókin  leyndardómur býflugnanna og grip í hana þegar skólabækurnar eru að gera mig gggaaaa.  Þetta er frábær bók,, mæli með henni.  nú svo er nátturulega verið að glugga í kökublaðið hehe eru ekki annars jólin að koma !!

snjókúlu- bestustukveðjur... Steinunn

steinunn (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 20:23

13 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Steina mín, ég var farin að sakna þín. Gott að þú et komin aftur. Heyrðu annars mig vantar„mailinn„ hjá mömmu þinni.Viltu senda mér hann á svansa@simnet.is Ég þarf að lesa Býflugurnar. Já jólin þau koma áður ern maður veit af. Love

Svanhildur Árnadóttir, 31.10.2007 kl. 19:12

14 identicon

Sæl aftur... Spjallaði aðeins við Kidda frænda í vinnunni í gær og ég lofaði honum að skila til ykkar bestu kveðjum:)

Þórgunnur Lilja (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 14:57

15 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Ég þjáist af athugasemdaafbrýðissemi

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 1.11.2007 kl. 23:03

16 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Sko! Núna ertu komin með 15 komment!

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 1.11.2007 kl. 23:03

17 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Nei ég meina 16.. 17!

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 1.11.2007 kl. 23:04

18 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Já.... örverpið er alltaf jafn fyndið...

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 1.11.2007 kl. 23:04

19 identicon

hahaha ég get ALLTAF hlegið af þér hrafn...haha;D núna get ég ábyggilega alveg farið a' sofa:P;**

Andrea (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 00:28

20 identicon

Bíddu er keppni í gangi eða?

og Andrea ekki sofnuð kl.00.28 hvurslags 

Þórgunnur (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 11:11

21 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Stelpur eruð þið alveg að sleppa ykkur? Hvað er í gangi?Nú hætti ég að blogga.....

Svanhildur Árnadóttir, 2.11.2007 kl. 17:31

22 identicon

nei, bloggið þitt er alltof gott til þess

Þórgunnur (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband