17.11.2007 | 20:01
Trú.
Ég hef allnokkuð ígrundað trúmál í gegnum tíðina. Kristin trú hefur spilað þar aðalhlutverk. Ég er alin upp við hina hefðbundnu kristnu trú. Mér voru kenndar bænir og brýnt fyrir mér að breyta rétt í einu og öllu.Það var uppúr miðri síðustu öld sem mér var kennt Faðir vorið. Ég verð að viðurkenna að lengi framan að var skilningur minn á bæninni af skornum skammti, enda ekki nema fjögra til fimm ára gömul. Skuldunautarnir voru mér lengi erfiðir. Mér fannst að þessi naut hlytu að vera mjög sérstök, allt öðruvísi en nautið hans afa á Hóli. Svo voru vér og vorum nokkuð strembin og framandi. Ég minnist ekki langra útskýringa, maður átti bara að læra þetta og fara með bænina á hverju kvöldi þá myndi manni farnast vel. Láttu nú ljósið þitt var skítlétt miðað við Faðirvorið.
Þegar ég tala um hefðbundna kristna trú á ég við, að fólk almennt var ekki bókstafstrúar heldur trúði á ákveðna siðfræði sem Biblían boðaði, aðallega Nýja textamentið.Öll gömlu góðu uppeldisgildin eru í raun siðfræði úr Nýja textamentinu. Hvort sem þið trúið því eða ekki þá hefur bænahald mitt staðið nær óslitið frá því að ég man eftir mér. Þó hafa komið nokkrir kaflar í lífi mínu þar sem ég hef ekki farið með bænirnar.Á þessum tímabilum hef ég verið í verulegri fýlu við guð minn og vægast sagt mjög ósátt við hann, svo ekki sé tekið dýpra í árinni.
Ég hef verið og er enn þeirrar skoðunar að hver og einn þurfi að eiga sér einhverja trú. Ef engin trú er til staðar fer fljótt að halla undan og hinn trúlausi berst stefnulaust með straumnum sem rekald væri. Trúin getur verið af margvísum toga. Það þarf ekki endilega að trúa á einhvern Guð,einhverja ása, Búdda, Allah eða hvað þeir nú heita allir. Sumir trúa á stokka og steina, von og kærleika. Ennþá er til fólk sem trúir á Framsóknarflokkinn. Málið er að eiga bara trú. Trú á sjálfum sér. Æðruleysisbænin hjálpar þar. Í einu fýlukastinu við Guð fór ég að lesa Biblíuna. Ég hafði aldrei lesið Gamla textamentið og hef ekki enn klárað það. Ég hafði jú lesið Biblíusögurnar í grunnskóla og elskaði þessar fallegu sögur af Jesú og hjálpræði hans. Ást mín á því Gamla, er engin. Ég var eitthvað að velta þessum trúmálum fyrir mér í dag þar sem ég lá í makindum niður við sjó og horfði til himins. Guð skapaði heiminn Hann skapaði Adam. Evu ræfilinn skapaði Hann úr rifbeini Adams. Getur einhver sagt mér hvaðan tengdabörn Adams og Evu komu? Allrar góðar vættir veri með ykkur. Til hamingju með afmælið Allý!
P.s. Ég sá Garðar frá Ytra-holti í sjónvarpinu á dögunum. (Ekki óraði okkur SillaJúl,að Gæi ætti eftir að verða sjónvarpsstjarna) Fréttamaður spurði Gæa (sem fulltrúa veðurspárklúbbs Dalbæjar) hvort það yrðu hvít jól í ár?. Gæi setti sig í spámannsstellingu og lét líða hæfilega langa þögn þar til hann svaraði ja það gæti alveg orðið. Er þetta ekki alveg yndislegt?
Athugasemdir
Takk fyrir
Allý (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 15:23
Ég er innilega þakklát fyrir að hafa mátt Láttu nú ljósið þitt nægja fram eftir öllu enda held ég að þeim í efra sé nokk sama hvernig bænin hljómar ef hún er sönn.
Þetta með Gæa í sjónvarpinu ætlaði mig gjörsamlega að drepa úr hlátri og vinnufélagana mína líka.
Þessu hef ég sértaklega gaman af.......það er y í hliti.....og ekki reyna að segja að bæði sé rétt, það er það ekki!
Þórgunnur (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 23:07
Takk fyrir leiðréttinguna.´*Eg get verið sammála þessu með bænina en Þú svarar ekki spurningunni um konurnar þeirra Kains og Abels. Hvaðan komu þær?
Allý hefur ekki treyst sér heldur að svara þessu.
Svanhildur Árnadóttir, 19.11.2007 kl. 15:35
þeir hljóta að hafa eignast systur sínar eða hvað? nema guð hafi skapað fleiri á eftir Adam og Evu en þess sé bara yfirleitt ekki getið. Við vitum hver steig fyrst á tunglið en ekki hver var annar til þess, sama syndromið......
Þórgunnur (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 19:23
Trúin já barnatrúin, minnir mig á að fá fréttir af barnabókinni sem við ætlum að gefa út ? Hvað líður !
KV
kristjanv (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 20:52
Þú veist það nú Kristján minn, að allt hefur sinn stað og tíma.
Svanhildur Árnadóttir, 21.11.2007 kl. 09:29
hææ elsku amma og afi;* hvað segiði gott? það er bara allt gott að frétta héðan hjá mér bara ein vika eftir í skólanum og þið að koma heim í næstu viku:D ég get ekki beðið og ella var aðláta mig fá gjöfina og bara takk æðislega þetta smelllur allt á mig bara eins og ég hafi verið með ykkur:P brjóstarhaldarinn og buxurnar og allt sko:) bara takk æðislega elska ykkur alveg óendanlega mikið;** loov
Andrea (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 15:38
heyrðu annað ef þú finnur svona eyrnalokka eins og þú átt frá henricka voge hvernig sem þetta er skrifað:D máttu alveg kaupa þá ef þú sérð svona sem við köllum þetta bling bling:P og það þarf ekki að vera frá neinum sérstökum..junk er alltaf fínt sko:P meðan það er svona blingbling má líka vera í öðrum lit en bara hvítum:) lovjú;*
Andrea (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 21:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.