28.11.2007 | 12:06
Á heimleið!
Jæja þá er dvöl okkar hér á Cabo Roig að ljúka í bili. Þetta hefur verið yndislegur tími. Við hlökkum samt til að koma heim og hitta fólkið okkar og fara að stússast í jólaundirbúningi. Ég er alveg ákveðin í að undirbúa jólin svipað og vanalega. Það má segja að í nógu verði að snúast. Það liggur fyrir að pakka 40 ára samsafni úr Öldugötunni niður í kassa og finna þeim geymslustað. Vá! þegar ég skrifa þetta þá hugsa ég : er þetta gerlegt? Svava frænka var að pakka eins til tveggja ára samsafni niður og stundi þungan undan farginu. Það er náttúrlega ótrúlegt hvað hægt er að safna að sér af þörfu og óþörfu á skömmum tíma, hvað þá fjöritíu árum eða rúmlega það. Bið allar góðar vættir að vernda ykkur þar til við heyrumst síðar.





Athugasemdir
Hann er langflottastu hann Björn Emil:) Maður er svo grobbin af honum! En það verður gaman að fá ykkur heim... Ég kemst í jólaskapið 14 des, þangað til þá er það lestur
Góða ferð heim og við sjáumst vonandi fljótlega!
Þórgunnur Lilja (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 12:58
Elskuleg! Góða ferð heim og gangi þér vel með hústæminguna. Verð nú að segja mér til varnar að ég er nú ekki kvartsár að öllu jöfnu; en Svansa ég er búin að tæma, pakka, flytja og setja aftur í stand SVO OFT síðustu örfáu árin að ég er löngu búin að fylla venjulegan lífskóta, fæ grænar af tilhugsuninni einni saman
!!!
Gæti þó alveg hugsað mér að skreppa norður og hjálpa þér mín kæra, ég er náttúrulega kona með reynslu og góða rútínu
Þú lætur mig bara vita, ég verð komin til Íslands fyrir áramót. Njóttu aðventunnar, KNUS
rastamama, 28.11.2007 kl. 13:23
Gleymdi að segja það; rosalega eru þetta flottar myndir hjá þér
rastamama, 28.11.2007 kl. 13:24
Já Þórgunnur, hann er yndislegur. Gangi þér vel í prófunum elsku vina. Elsku Svava mín, ég var að stríða þér. Ég vissi að þetta myndi koma við kaunin í þér. Takk fyrir góðar óskir og njóttu líka mín kæra. Vonandi sjáumst við á Fróni.
Svanhildur Árnadóttir, 28.11.2007 kl. 15:27
Góða ferð mín elskulegustu. Hlökkum ótrúlega mikið til að hitta ykkur eftir rúma 17 daga
Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 28.11.2007 kl. 21:18
Kauninn? það urraði sko í mér eins og heyrist í frú Simpson með fjólubláa hárið þegar ég las þetta
URGURGURRRG!!!
Svei mér ég held ég komi ekkert norður til að hjálpa þér að pakka
!!! Gangi þér samt vel í þessu öllu mín kæra 
Svava (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 00:22
Góða ferð á klakann, hlakka til að sjá ykkur..
Það má nú alveg hóa í mann til að setja kassa,,, ég er alvön heheh
sjáumst
steina (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 00:56
hey, á ekkert að segja frá flutningunum...........
Þórgunnur (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.