Frænkur á ferð.

Innkaupatúr.    Ella og Daddi hafa verið hér í viku. Þau eru að rygga til í Lundi, þrífa og hreiðra um sig. Ýmislegt hefur þurft að draga í búið og auðvitað var arkað á markaðinn sl. laugardag og má sjá á myndinni að keypt var sitt lítið af hverju.

Þau hafa nú komið sér ágætlega fyrir og er orðið býsna heimilislegt hjá þeim Lundsbúum. Það er afar góð tilfinning að við frænkurnar skulum vera komnar í slíkt nábýli á erlendri grundFyrsta kvöldmáltíðin.. Við ólumst upp í miklu nábýli á Dalvíkinni draumabláu. Ef eitthvað er er enn styttra á milli Reykholts og Lunds hér í Zenia Golf en er í Karlsbrautinni.

Við vorum boðin í fyrstu kvöldmáltíðina og er ekki að spyrja að þar voru dýrindisveitingar á borðum og voru allir saddir og sælir þegar upp var staðið.

Frænkur á ferðVið frænkurnar og vinkonurnar njótum samvistanna og dettum annað slagið í gamla barna-gírinn (minnugar þess að tvisvar verður gamall maður barn) þegar við rifjum upp gömul minningabrot, eða upplifum eitthvað skemmtilegt og framandi. Við hlægjum okkur í raun máttlausar af litlu tilefni og karlar okkar kíma í kampinn.

Ég bið allar góðar vættir að vera með ykkur.Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Það er nú bara eitt sem þarf að segja hér: "Hvar er gítarinn?!"

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 10.4.2008 kl. 00:37

2 identicon

ohh Carol, æm a butta fúl.......ég heyri hlátrasköllin ykkar hingað og mér sýnist að þið sjáið um handleggsvöðvarnir á karlpeningnum rýrni ekki, það er gott.

Þórgunnur (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 09:17

3 identicon

Hrafnhildur, getum við ekki bara mætt með gítarinn??? :)

Hulda Signý (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 09:58

4 identicon

Er ég að klúðra þessu með að vera ekki á Zenia Golf? Eða er það hið besta mál að þurfa að labba til Cabo Roig til að kenna ,,krakkanum" milliröddina?. Man þetta ekki alveg, er það glaður eða graður röðull sem hló?

Helga (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 16:11

5 identicon

jESSÚS MINN HVAÐ ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ MIKIÐ STUÐ Á YKKUR

OG BESTU KVEÐJUR YFIR Í LUND OG REYKHOLT FRÁ BRAUTARHOLTI  

Sigríður Brautarholt frú (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 19:00

6 identicon

Og hver sér um Helga Magra strætið og allar eignir Ellu á AK ?

Kristján V (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 22:36

7 identicon

Dýrrrrrrlegt!!!!!!!!

Lovísa (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 09:14

8 identicon

Spurningin er hvort að SH hafi komuð með uppáhalds geisladiskinn sinn......IRISH DRINKING SONGS!

Hannes Skafta (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 11:58

9 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Já það er sko fjör hérna og gítarinn ekki langt undan. Konan sem keypti Tungufell um árið sér um eignir Ellu og Dadda. Írskir drykkjusöngvar komast ekki í hálfkvisti við OhCarol,Sestu hérna,Kvöldið er fagurt og fl. Kveðjur í Brautarholtið og til allra.

Svanhildur Árnadóttir, 13.4.2008 kl. 19:07

10 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Helga mín. Hann var glaður þegar hann varð graður.

Svanhildur Árnadóttir, 13.4.2008 kl. 19:27

11 identicon

Hvernig er það á bara að vera í fermingarveislum og að þvælast með Ellu og ekkert að bæta manni við sem blogg vin !!!!

kristjan vigfusson (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:33

12 Smámynd: Svanhildur Árnadóttir

Kristján minn þú hefur og verður nú alltaf besti vinur minn.

Svanhildur Árnadóttir, 17.4.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband